Gísli Bragi Hjartarson, múrarameistari og fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, lést 21. janúar síðastliðinn, 85 ára að aldri. Greint er frá andlátinu á vefmiðlinum akureyri.net.
Gísli Bragi fæddist á Akureyri 20. ágúst 1939 og ólst upp á Brekkunni. Foreldrar hans voru hjónin Lilja Sigurðardóttir húsmóðir og Hjörtur Gísli Gíslason, verkamaður og rithöfundur. Systkini hans eru Anna Ingibjörg, sem er látin, Sigurður, sem einnig er látinn, Hjörtur Hreinn og Reynir.
Gísli Bragi var kunnur íþróttamaður á árum áður. Hann keppti bæði á skíðum og í frjálsíþróttum og sat um tíma í aðalstjórn Íþróttafélagsins Þórs. Þótt hann hafi verið alinn upp meðal KA-manna á Brekkunni þá gekk hann til liðs við Þór á sínum tíma, einn fárra í hópi æskuvinanna.
Hann stundaði golf í áratugi og tók einnig að sér trúnaðarstörf á þeim vettvangi; var formaður Golfklúbbs Akureyrar (GA) frá 1984 til 1986 og framkvæmdastjóri klúbbsins frá 1990 til 1995. Gísli Bragi var heiðursfélagi GA.
Gísli Bragi gekk ungur til liðs við Alþýðuflokkinn og var bæjarfulltrúi á Akureyri í þrjú kjörtímabil fyrir flokkinn, frá 1986 til 1998. Gegndi á þeim tíma formennsku í ýmsum nefndum og ráðum bæjarins.
Eftirlifandi eiginkona Gísla Braga er Aðalheiður Alfreðsdóttir. Á akureyri.net kemur fram að þau hafi gengið í hjónaband 1. janúar árið 1960 og því átt 65 ára brúðkaupsafmæli í upphafi þessa árs.
Börn Aðalheiðar og Gísla Braga eru sex; Lilja er yngst en áður höfðu þau eignast fimm syni, sem allir voru landsliðsmenn í íþróttum. Þeir eru Hjörtur, Alfreð, nú þjálfari Þýskalands í handbolta, Gunnar og tvíburabræðurnir Garðar og Gylfi. Barnabörnin eru 23 talsins og barnabarnabörnin 21.