Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram og magn þeirrar kviku sem safnast hefur saman undir niðri nálgast nú það magn sem kom upp í síðasta eldgosi.
Líkur á nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi fara nú vaxandi og talið er mögulegt að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil áður en svo verði.
Veðurstofan greinir frá þessu og segir atburðarásina halda áfram á svipaðan hátt og fyrir síðustu gos.
Hefur stofnunin uppfært hættumat sitt og gildir það til 11. febrúar að öllu óbreyttu.
Ákveðið hefur verið að hækka hættustig á svæðum 4 og 6.
„Ástæðan fyrir breytingunum er að samkvæmt líkanreikningum hefur magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálagst það magn sem kom upp í síðasta eldgosi,“ segir í tilkynningunni.
Þá er tekið fram að samkvæmt veðurspá sé von á umhleypingum út vikuna. Veðrið er sagt geta dregið úr næmni mælanetsins og þannig gert eldgosinu kleift að gera ekki mikil boð á undan sér.
Enn fremur er bent á að jarðskjálftavirkni á Sundhnúkagígaröðinni hafi aukist hægt frá goslokum 9. desember síðastliðinn en að virknin sé enn lítil.
„Þróunin síðasta árið sýnir að jarðskjálftavirkni fyrir kvikuhlaup fari minnkandi með hverjum atburði. Því er möguleiki á að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta eldgos.“