Fugladauði á Vestfjörðum

Segir Hlynur fugladauða orðin nokkuð algengan bæði á Vestfjörðum og …
Segir Hlynur fugladauða orðin nokkuð algengan bæði á Vestfjörðum og víða um land. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglunni á Vestfjörðum var tilkynnt um dauða og veika fugla í síðustu viku. Fuglunum var komið í viðeigandi hendur.

Þetta skrifaði lögregla í færslu á samfélagsmiðlum.

Brýnt er þar fyrir fólki sem kemur að dauðum eða veikum fuglum að það hafi samband við neyðarlínu, 112, og gefi upp staðsetningu þeirra. Skynsamlegt sé að láta það vera að taka þá með sér eða handfjatla með nokkru móti.

Þá er bent á að Matvælastofnun hafi með þennan málaflokk að gera.

Fugladauði orðinn algengur víða

Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir í samtali við mbl.is að lögregla hafi viljað minna fólk á það hver færi með málaflokkinn í kjölfar fugladauða á Flateyri í síðustu viku.

Segir Hlynur slíkan fugladauða orðinn nokkuð algengan bæði á Vestfjörðum og víða um land.

Hann kveðst ekki vita hvort um fuglaflensu sé að ræða enda sé lögreglan ekki í því að skera úr um slíkt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert