Hvalreki í Guðlaugsvík: 14 metra langur búrhvalur

Um er að ræða 14 metra langt hræ af búrhval.
Um er að ræða 14 metra langt hræ af búrhval. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á Norðurlandi vestra greinir frá því að tilkynning hafi borist í upphafi vikunnar um hvalreka í Guðlaugsvík.

Fram kemur í færslu sem lögreglan birti á Facebook að um sé að ræða hræ af búrhval sem hafi verið um 14 metra langt.

„Til samanburðar má áætla að þrjár Tesla Y-bifreiðar séu nokkurn veginn jafnlangar séu þær samsíða hvalnum, eða sjö Cleveland 3ja sæta sófar lagðir samsíða hvalnum,“ segir í færslu lögreglunnar.

Þegar vart verður við hvalreka þarf lögreglan að gera fjölmörgum …
Þegar vart verður við hvalreka þarf lögreglan að gera fjölmörgum stofnunum viðvart, hvort sem um er að ræða lifandi eða dauðan hval að sögn lögreglu. Ljósmynd/Lögreglan

Getur verið flókið að eiga við

Þá segir lögreglan að þrátt fyrir fagra skepnu og mikilfengleika hennar „skal ósagt látið hvort sveitungar í Guðlaugsvík líti á hræið sem happafeng en það heyrir sjálfsagt til undantekninga að ábúendur nýti hvalhræ nú á dögum. Sjái náttúran ekki um að „urða“ hræið getur verið æði flókið að koma því í viðeigandi farveg.“

Lögreglan segir enn fremur að þegar vart verði við hvalreka þurfi lögreglan að gera fjölmörgum stofnunum viðvart, hvort sem um sé að ræða lifandi eða dauðan hval. En upplýsa þurfi viðkomandi heilbrigðiseftirlit, Matvælastofnun, Hafrannsóknarstofnun, Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúrustofu sem og sveitarfélagið þar sem hvalrekinn er.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert