Um 140 jarðskjálftar hafa mælst við Vífilsfell síðasta sólarhringinn en hrina smáskjálfta hófst þar í gær.
Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að um eðlilega skjálftahrinu sé að ræða og engin merki sé um gosóróa enda sé engin kvikusöfnun í Vífilsfelli.
„Þessir skjálftar tengjast líklega flekaskilum sem eru ekki svo langt frá,“ segir hún við mbl.is.
Skjálftarnir sem hafa mælst eru vægir en sá stærsti sem hefur mælst í hrinunni er 1,4 að stærð.