Leðurblakan í Laugardal hefur skrækt sitt síðasta

Leðurblakan sem hefur verið á ferð og flugi um Laugardal undanfarna daga fannst fyrir utan heimili í Teigunum og var gómuð þar af meindýraeyði Reykjavíkur.

„Hún var við það að drepast þegar hún náðist,“ segir Þorkell Heiðarsson, deildarstjóri hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur. „Eiginlega líflaus að mestu leyti.“

Dýrið, sem nú hefur verið svæft, var nær dauða en lífi þegar það fannst.

„Hún var einfaldlega óheppin með veður.“

Þorkell segir enn fremur að rannsaka þurfi þá sjúkdóma sem leðurblakan kann að hafa borið með sér til landsins en dýrin eru þekktir smitberar. Síðan muni Náttúrufræðistofnun greina tegundina.

Dýrið var nær dauða en lífi þegar það fanns í …
Dýrið var nær dauða en lífi þegar það fanns í dag. „Hún var einfaldlega óheppin með veður.“ Ljósmynd/Dýraþjónusta Reykjavíkur

Fannst frosin við vegg

Lilja Borg, íbúi í húsnæðinu þar sem leðurblakan fannst, birti myndskeið af starfsmanni dýraþjónustunnar veiða leðurblökuna í háf, en dýrið virtist þar hreyfingarlaust og gaddfreðið við vegg.  

@lillyborg10 Leðurblakan fundin! @RÚV - fréttir ♬ original sound - Lilja

Á flugi yfir sundgestum

Á sunnu­dag var lög­regla kölluð út þegar leður­blakan fannst í Laugardalslaug og flaug þar ansi nálægt sundgestum en flúði síðan á brott.

Einnig sást til leður­blöku á flögri við Laug­ar­nes­veg nálægt Sundahöfn hinn 13. janú­ar. Þorkell útilokar ekki að þetta gæti verið önnur leðurblaka.

Dýraþjónustan þarf sjaldan að sinna verkefnum sem varða leðurblökur að sögn Þorkels. Það séu allmörg ár síðan Reykvíkingar fengu slíkan gest. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert