„Ljóst að gerendur í þessu máli fá bágt fyrir“

Líkamsárásin átti sér stað við Brekkubæjarskóla á Akranesi.
Líkamsárásin átti sér stað við Brekkubæjarskóla á Akranesi. mbl.is

Yfirheyrslur standa yfir hjá lögreglunni á Vesturlandi yfir nokkrum ungmennum vegna hrottalegrar líkamsárásar sem átti sér stað á Akranesi í desember. Nokkrir hafa verið handteknir vegna málsins og miðar rannsókninni vel, líkt og mbl.is hefur greint frá.

Hópurinn gekk í skrokk á karlmanni við Brekkubæjarskóla á Akranesi eftir að hafa leitt hann í gildru með tálbeituaðferð. Ungmennin komust í samband við manninn í gegnum samfélagsmiðla með því að villa á sér heimildir, en hann taldi sig vera að fara að hitta unglingsstúlku.

Er það einnig til skoðunar hjá lögreglunni hvort maðurinn hafi gerst sekur um að brjóta gegn börnum.

Maðurinn hringdi sjálfur á Neyðarlínuna en samkvæmt heimildum mbl.is lá hann þungt haldinn á sjúkrahúsinu um tíma eftir árásina.

Skoðað hvort maðurinn hafi brotið gegn börnum

Að sögn Ásmundar Kristins Ásmundssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vesturlandi, telur lögreglan sig vita með vissu hverjir komu að árásinni. Myndskeið af henni hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum og hefur lögregla það undir höndum. Það liggur því nokkurn veginn fyrir hvað gerðist.

Spurður hvort aðdragandi málsins sé einnig skoðaður, það að maðurinn hafi ætlað sér að hitta unglingsstúlku, og hvort hann hafi brotið gegn börnum, segir Ásmundur það gert. Allir þættir málsins séu rannsakaðir.

„Í þessu tiltekna máli, þá rannsaka mínir rannsóknarmenn allt sem að þessu kemur.“

Ekki borist kæra á hendur manninum

Einn þátturinn er þá að skoða hvort eitthvað sé til í þessum ásökunum?

„Við þurfum að rannsaka allar hliðar þessa máls. Þetta er afar slæmt þegar borgarar úti í bæ eru farnir taka lögin í sínar hendur og refsa fólki. Það er ekki samkvæmt lögum. Síðan eru alvarlegar ásakanir líka í garð þessa aðila sem er fenginn þarna á staðinn, þannig við þurfum að skoða allt,“ segir Ásmundur.

„Það hefur ekki borist kæra á þennan aðila í þessu máli. Hann er tjónþoli, sá sem er slasaður eftir þetta. En það er allt skoðað, allt uppi á borðinu,“ bætir hann við.

Væri það það þá skoðað sem nýtt mál?

„Já, það er allt rannsakað og ef ástæða þykir til þá er farið lengra með það.“

„Ég held að það vilji enginn fara í fangelsi“

Hann segir málið grafalvarlegt og að lögreglan hafi áhyggjur af þessari þróun.

„Þegar svona er í gangi og að þetta sé orðið einhvers konar trend. Þetta virðist ekki bara vera á Íslandi, en þetta er grafalvarlegt. Hver ætlar að sanna hvað og það getur allskonar gerst. Það getur verið að aðili sem verður fyrir svona árás hafi ekkert sér til saka unnið,“ segir Ásmundur

„Einhverjir telja sig vera komna í dómarasætið og eru að setja upp svona og refsa fyrir. Það er mjög alvarlegt,“ bætir hann við.

Hann bendir á að gerendur hafi verið með ýmsar yfirlýsingar í fjölmiðlum, meðal annars sagt að þeim sé sama þó þeir þurfi að sitja í fangelsi.

„Þetta er afskaplega slæmt. Ég held að það vilji enginn fara í fangelsi.” 

Það sé lögreglunnar að stöðva svona og það sé gert með því að finna út hverjir áttu hlut að máli. Sem sé verið að gera núna.

„Það er ljóst að gerendur í þessu máli fá bágt fyrir,“ segir Ásmundur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert