Lokað verður fyrir almenna umferð yfir Ölfusárbrú við Selfoss frá miðnætti til klukkan tvö aðfaranótt fimmtudags.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá umferðarþjónustu Vegagerðarinnar.
Segir þar að lokað verði fyrir umferð á meðan unnið verði að viðgerðum á brúnni.