Ræna fólki og neyða í herþjónustu

Sífellt erfiðara reynist að fá ungt fólk til að skrá sig í herþjónustu, bæði í Úkraínu og í Rússlandi. Karl Garðarsson, fyrrum þingmaður og fréttamaður, þekkir vel til í Úkraínu og fylgist með stríðsátökunum.

Hann segir að nú geti ungir menn átt von á því að verða hreinlega rænt á götum úti og skikkaðir í herinn.

Stríðið hefur geisað í Úkraínu í 1.069 daga. Mannfall hefur verið mikið beggja vegna víglínunnar. Tölur sem úkraínsk yfirvöld hafa gefið upp um fjölda rússneskra hermanna sem fallið hafa eða særst í átökunum eru um átta hundruð þúsund manns. Karl leggur trúnað á þær tölur. Opinberar tölur eru ekki til um mannfall Úkraínumanna en það mun vera minna.

Þetta gríðarmikla mannfall kallar á stöðuga endurnýjun á hermönnum til að fylla í skörðin. Fólk er orðið mjög tregt til að skrá sig í herinn og segir Karl að þeir sem voru tilbúnir til að verja landið á víglínunni hafi þegar farið.

Karl Garðarsson er gestur Dagmála í dag þar sem hann ræðir stöðuna í hinu stríðshrjáða landi. Eiginkona hans er frá Úkraínu og hann hefur farið margar ferðir til landsins eftir að stríð braust þar út.

Unnið að því að slökkva eld eftir árás Rússa á …
Unnið að því að slökkva eld eftir árás Rússa á úkraínsku borgina Karkív fyrr í dag. AFP

Mannfall Rússa 1.400 til 1.800 á hverjum degi

„Fólk vill ekki fara í herinn lengur. Til þess að eiga við það, þá hafa þeir neyðst til þess að fara í þorp og minni borgir og aka um í ómerktum bílum, tveir eða þrír saman. Þegar þeir sjá ungt fólk þá einfaldlega taka þeir það og skrá í herinn,“ upplýsir Karl. Hann hefur séð nýleg myndbönd sem staðfesta þetta. Þau myndbönd hafa ekki ratað í fréttir en verið deilt í lokuðum hópum á samfélagsmiðlum.

Karl segir að Rússar hafi neyðst til að taka upp sambærileg vinnubrögð til að geta mannað víglínuna. Hún er um þúsund kílómetra löng og mannfall á hverjum degi er á bilinu 1.400 til 1.800 manns, ýmist særðir eða látnir.

Hermenn frá Norður-Kóreu eru komnir til liðs við rússneska herinn, eins og greint hefur verið frá í fréttum. Karl segir það eina birtingarmynd þess að erfiðlega gangi að fá nýliða til að fylla í hin fjölmörgu skörð sem verða til að degi hverjum.

Í þeim hluta viðtalsins sem hér fylgir ræðir Karl Garðarsson um vandann við að manna stríðsvélina. Viðtalið í heild sinni er aðgengilegt fyrir áskrifendur Morgunblaðsins hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert