Segist ekki hafa ýjað að neinu um lögregluna

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir í samtali við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi í dag að hún hafi ekki ýjað að neinu í sambandi við lögregluna eða stöðu sinni í samfélaginu í símtali við Ársæl Guðmundsson, skólameistara Borg­ar­holts­skóla.

Inga tók upp símann vegna skóp­ars sem týndist í skólanum og var í eigu barnabarns hennar.

Hvatvís amma

Sagðist Inga myndu reyna að vera sem mest Inga þótt hún sé ráðherra í dag.

„Þarna verð ég hvatvís amma. Ég tek upp tólið og hringi, engar hótanir eða slíkt – tveggja manna tal.“

Þá sagðist hún ætla að vanda sig og sagðist gera sér grein fyrir stöðu sinni í dag.

„Þetta voru mistök, ég átti að telja upp á 86 áður en amman tók upp símann.“

Biðst velvirðingar ef óþægindi hlutust af

Vildi hún biðja Ársæl innilega velvirðingar ef honum hafi þótt óþægilegt að hún hringdi.

„Ég hringdi sem Inga Sæland og túlkaði mig aldrei neitt annað.“

Þú ýjaðir ekkert að neinu varðandi lögreglu eða stöðu þína í samfélaginu?

„Nei, ég ýjaði ekki að neinu slíku.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert