Snjó kyngir niður á höfuðborgarsvæðinu

Það hefur snjóað töluvert á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í …
Það hefur snjóað töluvert á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það hefur snjóað töluvert á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í morgun og hætt er við að það hægist á morgunumferðinni.

Víða er þæfingsfærð á götum á höfuðborgarsvæðinu og hálka og ökumenn ættu því að fara varlega og gefa sér góðan tíma í að moka snjó af ökutækum sínum.

Vetrarþjónusta Reykjavíkurborgar hóf snjómokstur í borginni seint í nótt og eru stofnbrautir, strætóleiðir og fjölfarnar safngötur í forgangi við snjómoksturinn.

„Miðað er við að stofnbrautir og strætóleiðir séu færar fyrir kl. 7.00 að morgni og að hreinsun annarra megin umferðargatna sé lokið fyrir kl. 8.00,“ segir á vef Reykjavíkurborgar.

Á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, segir að snjóþekja, krapi eða hálka sé á flestum leiðum á Suðvesturlandi en þæfingur er á Reykjanesbraut, Mosfellsheiði, Kjósarskarði og Suðurstrandarvegi austan Krýsuvíkur. Þungfært er á Suðurstrandarvegi vestan Krýsuvíkur og á Nesvegi.

Það verður víða snjókoma eða él á landinu í dag en það dregur úr ofankomunni síðdegis og léttir til á sunnanverðu landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert