Flokkur fólksins á gjaldþrot á hættu verði honum gert að endurgreiða styrki, sem greiddir voru flokknum undanfarin þrjú ár án þess að hann uppfyllti lagaskilyrði um fjárstuðning hins opinbera við stjórnmálaflokka.
Þetta sagði Inga Sæland formaður flokksins við fjölmiðla í gær, en skýrast kann hvað úr verður að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Lögfræðingar sem Morgunblaðið hefur borið málið undir telja að Fjársýsla ríkisins og fjármálaráðherra hafi ekkert val um þá styrki, sem ofgreiddir voru undanfarin ár; krefjast verði endurgreiðslu þeirra. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur lýsti svipuðum sjónarmiðum í viðtali við Rúv.
Miðað við síðustu ársreikninga hefur Flokkur fólksins ekki bolmagn til þess að greiða nema lítinn hluta þeirra 240 milljóna, sem hann fékk ofgreiddar, og er tæplega í stöðu til þess að fá lán fyrir því sem út af stendur. Mat Ingu á yfirvofandi gjaldþroti er því að líkindum á rökum reist.
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins víkur að þessu máli í grein á miðopnu blaðsins í dag, þar sem hann fjallar um nýja ríkisstjórn.
Hann telur ráðlegast til þess að auka traust á lýðræðinu og stjórnkerfinu að yfirfara fjármál stjórnmálaflokka og rannsaka hverjir eiga rétt á slíkum greiðslum, en jafnframt að krefjast endurgreiðslu frá þeim sem uppfylla ekki skilyrði til að fá almannafé til að standa straum af rekstri og kosningabaráttu flokka sinna.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag