Unnið að tillögum að neyðarbirgðum

Innlend kornrækt er talin mikilvægur liður í auknu fæðuöryggi.
Innlend kornrækt er talin mikilvægur liður í auknu fæðuöryggi. mbl.is/Sigurður Bogi

Matvælaráðuneytið segir matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands vinna að því að gera tillögur að nauðsynlegum neyðarbirgðum matvæla hér á landi ef raskanir yrðu á aðfangakeðjum. Matvælaráðuneytið kveðst eiga von á því að fá tillögurnar afhentar síðar á þessu ári.

Þetta kemur fram í svari matvælaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins um það hvort ráðuneytið telji hægt að tryggja fæðuöryggi Íslendinga verði kornbirgðir í landinu aðeins til eins mánaðar ef kæmi til stórfelldrar truflunar á vöruflutningum til og frá landinu.

Nýlega var greint frá því í Morgunblaðinu að ef innlend hveitiframleiðsla stöðvast, eins og útlit er fyrir, yrðu aðeins mánaðarbirgðir af hveiti til í landinu í senn í stað þriggja til fjögurra mánaða. Fram kom í fréttaskýringu um helgina að samdráttur í matvælabirgðum eins og kornvöru gæti gengið gegn skuldbindingum Íslands gagnvart Atlantshafsbandalaginu þar sem Ísland hefur heitið því að bæta svokallað viðnámsþol landsins hvort sem það tengist hernaðarógnum, hryðjuverkum eða náttúruhamförum.

„Kæmi til stórfelldrar og almennrar truflunar á vöruflutningum til og frá landinu í mánuð myndi það sannarlega valda verulegri röskun á daglegu lífi landsmanna, ekki einungis hvað varðar kornbirgðir, heldur á fjölmörgum sviðum. Efnahagslegt tjón yrði þar auk þess umfangsmikið.

Ef miðað er við mánaðartímabil má ætla að hægt væri að uppfylla næringarþarfir landsmanna. Þó yrði úrval matvöru minna en áður og alls ekki í samræmi við það sem neytendur eiga að venjast. Ítreka verður að fyrirvara verður að setja varðandi umfang, eðli og tímasetningu mögulegrar truflunar á vöruflutningum til landsins,“ segir í svarinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert