Vegurinn um Kleifaheiði hefur verið opnaður að nýju eftir að hafa verið lokað í gærkvöldi vegna snjóflóða sem þar höfðu fallið.
Vegurinn um Raknadalshlíð hefur einnig verið opnaður en Vegagerðin varar þó við hættu á snjóflóðum á veginum. Það sama gildir um veginn um Súðavíkurhlíð.
Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is.
Þæfingur, snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum á Vestfjörðum og sömu sögu er að segja um vegi á Norður- og Norðausturlandi.
Hálka, snjóþekja eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Austurlandi en þæfingur er á Vatnsskarði eystra og Hróarstunguvegi og þungfært er á Hlíðarvegi.
Ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði.