„Morgunumferðin gekk bara mjög vel og ég verð að nota tækifærið og hrósa ökumönnum,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Talsvert snjóaði á höfuðborgarsvæðinu í nótt og í morgun og víða var þæfingsfærð og hálka en Árni segir að sáralítið hafi verið um útköll vegna árekstra.
„Við erum með þá kenningu að færðin í morgun hafi verið þannig að ökumenn þurftu að passa sig mjög vel. Það varð raunin og við erum mjög ánægðir með hvernig umferðin gekk í morgun,“ segir Árni.
Árni segir að í þeim húsagötum sem hann ók um í morgun hafi margir verið fastir í ruðningum og sköflum og það muni verða áfram þannig fram eftir deginum.
Hann segir að þegar ruðningstækin ryðji göturnar þá loki þau fyrir stæði sem geri það að verkum að ökumenn festist í sköflunum.
„Illa búnir bílar eiga alls ekkert erindi í þessa færð og hvatning til þeirra sem eru á lélegum dekkjum og ég tala nú ekki um að eru enn þá á sumardekkjum, sem eiga ekki að sjást, að drífa sig á dekkjaverkstæði.“