Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, segist enga aðkomu hafa að því að reyna að finna lausn á kjaradeilu kennara. Stjórnvöld fylgist vel með málinu en beiti sér ekki nema kallað sé sérstaklega eftir því af samningsaðilum.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sagði í samtali við mbl.is á föstudag að kennarar kalli eftir því að stjórnvöld komi að málinu og höggvi á hnútinn í deilunni.
„Við erum alveg klár á því að ef þetta mál á að klárast þá verður nýkjörin ríkisstjórn að koma inn í málið. Við verðum að taka samtal um skólakerfið allt og kennarana,“ sagði Magnús.
Ásthildur segist treysta því að deilan leysist án aðkomu stjórnvalda og að allt fari vel.
„Stjórnvöld fylgjast vel með kennaradeilunni. Við höfum væntingar um að þetta leysist á næstu dögum, eins og þarf að gerast, og stöndum með því að bæta starfsaðstæður kennara. Við treystum því að þetta muni fara vel,“ segir Ásthildur í samtali við mbl.is.
Þannig þið standið á hliðarlínunni og ætlið ekki að beita ykkur?
„Við gerum það ekki nema eftir því sé kallað eftir því sérstaklega og þá af samningsaðilum. Það hefur ekkert komið til umræðu.“
Ríkissáttasemjari sagði í samtali við mbl.is í gær að hann þættist vita að á vegum stjórnvalda væri unnið að því að hjálpa aðilum við að finna lausn á málinu. Ásthildur segist hins vegar enga aðkomu hafa að því.
Spurð hvort það komi til greina að setja lögbann á verkföll, svarar hún því neitandi.
„Í mínum huga kemur lögbann aldrei til greina á verkföll. Ég vil ekki lögbann á verkföll almennt séð. Ég get kannski ekki sagt aldrei, en ég myndi ekki vilja grípa til þess.“
Ljóst er að kjaradeila kennara, ríkis og sveitarfélaga er öll í hnút en deiluaðilar hafa ekki hist á formlegum samningafundi frá því á miðvikudaginn í síðustu viku. Þá var reynt til þrautar að finna grundvöll til frekara samtals, án árangurs.
Ríkissáttasemjari hefur ekki talið ástæðu til að boða til frekari funda að svo stöddu. Samtöl hafa þó átt sér stað á milli deiluaðila og einhverjar þreifingar eru í gangi.
Formaður samninganefndar Sambands Íslenskra sveitarfélaga hefur sagt að það þurfi viðhorfsbreytingu af hálfu kennara til að samningar náist. Þeir séu fastir í launakröfum sem ekki sé hægt að koma til móts við.
Formaður Kennarasambands Íslands segir kröfu um jöfnun launa á milli markaða standa óhaggaða. Grundvallaratriði sé að staðið sé við samkomulag frá árinu 2016.
Náist samningar ekki fyrir mánaðamót hefjast verkfallsaðgerðir kennara á ný þann 1. febrúar. Verkföll hafa verið boðuð í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum. Þá hefur Félag framhaldsskólakennara gefið út að farið verði í atkvæðagreiðslu um ótímabundin verkföll í nokkrum framhaldsskólum strax í byrjun febrúar.