Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og miðhálendið á morgun vegna suðaustan hríðarveðurs.
Spáð er suðaustan 15-23 m/s með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni í Þrengslum, á Hellis- og Mosfellsheiði og í uppsveitum á Suðurlandi. Þá er einnig búist við talsveðri hálku og varasömu ferðaveðri.
Viðvörunin tekur gildi klukkan 10 í fyrramálið á Suðurlandi, Faxaflóa og á miðhálendinu en klukkan 11 á Breiðafirði.