Gular viðvaranir vegna hríðarveðurs

Spáð er suðaustan hvassviðri með snjókomu.
Spáð er suðaustan hvassviðri með snjókomu. Kort/Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og miðhálendið á morgun vegna suðaustan hríðarveðurs.

Spáð er suðaustan 15-23 m/s með snjókomu, skafrenningi og lélegu skyggni í Þrengslum, á Hellis- og Mosfellsheiði og í uppsveitum á Suðurlandi. Þá er einnig búist við talsveðri hálku og varasömu ferðaveðri.

Viðvörunin tekur gildi klukkan 10 í fyrramálið á Suðurlandi, Faxaflóa og á miðhálendinu en klukkan 11 á Breiðafirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert