„Fyrst átti þetta að vera heimildarmynd um þau verkefni sem hann hefur tekið að sér eftir að hann hætti sem forseti. Fljótlega áttuðum við okkur á því að þetta var það umfangsmikið að heimildarmyndin varð að fjórum sjónvarpsþáttum. Við gerð þáttanna reyndum við að varpa ljósi á hver sé maðurinn.“
Þetta segir Skapti Örn Ólafsson, framleiðandi heimildarþátta um Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, sem sýndir verða á RÚV, væntanlega næsta vetur.
Skapti segir það gríðarlega spennandi verkefni og forréttindi að fjalla um Ólaf Ragnar með þessum hætti.
„Þetta var á árinu 2018 eða 2019 að Einar Þorsteinsson kom að máli við mig og Eirík Inga Böðvarsson kvikmyndargerðarmann og spurði hvort við værum til í þetta með sér, en þá starfaði hann hjá RÚV. Einar hafði verið í sambandi við Ólaf eftir að hann lét af embætti 2016 og bauð okkur að koma í þetta verkefni með sér.“
Þættirnir eru ekki leiknir heldur er stuðst við myndir og ýmsar heimildir auk viðtala við samtíðarmenn Ólafs og hann sjálfan.
„Við stiklum á stóru um öll hans helstu mál. Þetta er saga um unga drenginn frá Þingeyri sem varð forseti, segjum frá námsárunum og tímabili hans sem sjónvarpsmaður. Stjórnmálaferlinum eru gerð góð skil svo og árunum 20 sem hann gegndi embætti sem forseti lýðveldisins.“
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag