Hundur réðst á konu á Akureyri á fimmtudaginn í síðustu viku. Konan var flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir árásina til aðhlynningar.
Málið er nú til rannsóknar hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Þetta kemur fram í færslu embættisins á Facebook.
Konan var á gangi eftir Wilhelmínugötu til móts við Jóninnuhaga þegar hundurinn réðst á hana. Konan hlaut áverka og var flutt á sjúkrahúsið.
Búið er að tilkynna Matvælastofnun og Akureyrarbæ um málið en þær stofnanir fara með málefni hundsins.
Þeir sem urðu mögulega vitni að árásinni eru beðnir um að gefa sig fram við lögreglu eða hafa samband í síma 444-2800.