Í þessum leik- og grunnskólum eru fyrirhuguð verkföll

Verkföll hafa verið boðuð í 14 leikskólum og sjö grunnskólum …
Verkföll hafa verið boðuð í 14 leikskólum og sjö grunnskólum um allt land. Samsett mynd

Kjaradeila kennara, ríkis og sveitarfélaga er öll í hnút og eins staðan er í dag er ólíklegt að samningar náist fyrir mánaðamót.

Að öllu óbreyttu má því gera ráð fyrir því að verkfallsaðgerðir kennara hefjist á ný þann 1. febrúar.

Verkföll hafa verið boðuð í fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum. Þá hefur Félag framhaldsskólakennara gefið út að farið verði í atkvæðagreiðslu um ótíma­bund­in verk­föll í nokkr­um fram­halds­skól­um, eft­ir að friðarskyldu lýk­ur um mánaðamót­in.

Ótímabundnar verkfallsaðgerðir hefjast aftur 1. febrúar á þeim fjórum leikskólum þar sem kennarar voru í verkföllum fyrir áramót: 

  • Leikskóla Seltjarnarness 
  • Holti í Reykjanesbæ
  • Drafnarsteini í Reykjavík
  • Ársölum á Sauðárkróki

Þá verður farið ótímabundnar aðgerðir í eftirfarandi tíu leikskólum til viðbótar:

  • Leikskóla Snæfellsbæjar
  • Hulduheimum Akureyri
  • Höfðabergi í Mosfellsbæ
  • Lundabóli í Garðabæ
  • Lyngheimum í Reykjavík
  • Lyngholti í Reykjavík
  • Óskalandi í Hveragerði
  • Rauðhóli í Reykjavík
  • Stakkaborg í Reykjavík
  • Teigaseli á Akranesi

Á sama tíma hefjast tímabundnar verkfallsaðgerðir í sjö grunnskólum.

Verkföllum í þremur grunnskólum var frestað með friðarskyldu í lok nóvember, en þær aðgerðir hefjast aftur 1. febrúar og standa til 21. febrúar. Skólarnir eru eftirtaldir:

  • Árbæjarskóli í Reykjavík
  • Garðaskóli í Garðabæ
  • Heiðarskóli í Reykjanesbæ

Verkföll í eftirtöldum grunnskólum standa frá 1. febrúar til 26. febrúar: 

  • Egilsstaðaskóla á Egilsstöðum
  • Engjaskóla í Reykjavík
  • Grundaskóla á Akranesi
  • Lindaskóla í Kópavogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert