Kolbrún í framboði til rektors

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands, er meðal þeirra sem gefa kost á sér til embættis rektors Háskóla Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem Kolbrún sendi mbl.is. Þar segir hún það afar mikilvægt að leiða krafta vísindasamfélagsins saman til að tryggja að háskólinn standist alþjóðlegan samanburð.

„Ég legg áherslu á að styrkja stoðir gæðakennslu og náms í deildum skólans og að auka tækifæri stúdenta til rannsókna, starfsnáms og þátttöku í skapandi og hagnýtum verkefnum,“ skrifar hún.

„Mín bjargfasta trú er sú að akademískt frelsi og samvinna þeirra sem mynda háskólasamfélagið sé lykillinn að árangri,“ skrifar hún enn fremur.

Jón Atli Bene­dikts­son rektor hyggst ekki sækj­ast eft­ir embætt­inu áfram þegar skip­un­ar­tíma hans lýk­ur í júlí.

Að minnsta kosti fjórir aðrir hafa boðið sig fram: Björn Þor­steins­son heim­spekipró­fess­or, Ingi­björg Gunn­ars­dótt­ir aðstoðarrektor, Magnús Karl Magnús­son lyfjafræðiprófessor og Silja Bára Ómars­dótt­ir stjórnmálafræðiprófessor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert