Það er víða ansi kalt á landinu og til að mynda mældist 17,8 stiga frost á Sandskeiði klukkan 10 í morgun.
Í Víðidal suður af Elliðaárdal fór frostið niður í 16,6 stig klukkan 9 í morgun og við Veiðivatnahraun mældist 19,8 stiga frost klukkan 10.
Í dag verður hæg breytileg átt og víða léttskýjað en á morgun er spáð suðaustan hvassviðri með snjókomu eða slyddu, en rigningu við sjávarsíðuna. Það verður hægara og úrkomuminna um landið norðaustanvert og það hlýnar í veðri.
Gefnar hafa verið út gular viðvaranir á Suðurlandi, Faxaflóa, Breiðafirði og á miðhálendinu vegna suðaustan hríðarveðurs.