Orkukostnaður sligar garðyrkjuna

Oddrún Ýr og Þorleifur Þorri í gróðurhúsinu. Gjörbreyttar forsendur, segja …
Oddrún Ýr og Þorleifur Þorri í gróðurhúsinu. Gjörbreyttar forsendur, segja þau um rekstur sinn. mbl.is

Mikil hækkun á kostnaði við kaup á rafmagni til garðyrkjustöðva á skömmum tíma, í sumum tilvikum um meira en 40%, íþyngir nú rekstri þeirra og kallað er eftir viðbrögðum stjórnvalda.

„Rafmagnsreikningurinn hefur rokið upp á síðustu mánuðum og allar forsendur í okkar starfsemi hafa gjörbreyst. Eðlilega leitar aukinn kostnaður fljótt út í verðlagið og staða mikilvægrar matvælaframleiðslu veikist,“ segir Oddrún Ýr Sigurðardóttir, garðyrkjubóndi í Hrunamannahreppi. Hún reifaði stöðuna í bréfi sem sent var forsætis- og orkuráðherrum fyrir helgi, auk þess sem það var birt á félagsmiðlum.

Oddrún Ýr og Þorleifur Þorri Ingvarsson keyptu í júní á síðasta ári garðyrkjubýlið Reykás í Hrunamannahreppi, skammt frá Flúðum. Í Reykási eru alls um 5.000 fermetrar undir gleri í gróðurhúsum þar sem ræktaðar eru gúrkur, tómatar og kál. Stórir lampar eru í húsunum svo að ræktunin hafi yl og birtu og framleiðslan sé í jafnvægi yfir árið. Orkunotkunin í Reykási er 512.000 kWst á mánuði, en til samanburðar má nefna að venjulegt heimili notar um 380 kWst. mánaðarlega.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert