Ríkissáttasemjari gerir ráð fyrir að á morgun verði boðað til fundar í kjaradeilu kennara, ríkis og sveitarfélaga. Stefnt er að því að gera úrslitatilraun til að höggva á hnútinn í deilunni áður en verkfallsaðgerðir hefjast á ný á á mánudag. Ekki liggur þó fyrir hvenær fundurinn verður.
Aðspurður hvort það þýði að einhver árangur hafi náðst í samtölum á milli deiluaðila síðustu daga segir hann það ekki endilega vera svo.
„Það þýðir að það þarf að minnsta kosti að draga saman einhvers konar niðurstöðu af þessu ferli,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is.
„Það er þannig að það blasir við að það hefjist verkföll eftir helgina, þannig það þarf að gera einhverja úrslitatilraun til að höggva á þessa hnúta og það verður ekki beðið mikið lengur með það.“
Líkt og fram hefur komið hefur lítill sem enginn framgangur orðið í viðræðunum frá því samkomulag um friðarskyldu var gert í lok nóvember og verkföllum frestað.
Deiluaðilar hafa ekki hist á formlegum samningafundi frá því á miðvikudaginn í síðustu viku. Þá var reynt til þrautar að finna grundvöll til frekara samtals, án árangurs.
Sá þá ríkissáttasemjari ekki tilefni til að boða til frekari funda, nema eitthvað gæfi tilefni til. Samtöl hafa þó átt sér stað á milli deiluaðila og einhverjar þreifingar hafa verið í gangi.
Formaður samninganefndar Sambands Íslenskra sveitarfélaga hefur sagt að það þurfi viðhorfsbreytingu af hálfu kennara til að samningar náist. Þeir séu fastir í launakröfum sem ekki sé hægt að koma til móts við.
Formaður Kennarasambands Íslands segir kröfu um jöfnun launa á milli markaða standa óhaggaða. Grundvallaratriði sé að staðið sé við samkomulag frá árinu 2016.
Að öllu óbreyttu hefjast verkfallsaðgerðir á mánudag fjórtán leikskólum og sjö grunnskólum. Þá hefur Félag framhaldsskólakennara gefið út að farið verði í atkvæðagreiðslu um ótímabundin verkföll í nokkrum framhaldsskólum strax í byrjun febrúar.