Umhverfisráðherra vill að átta virkjunarkostir sem höfðu verið friðlýstir á ólögmætan hátt verði aftur teknir til mats í samræmi við lög um verndar- og orkunýtingaráætlun.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að þetta sé gert til þess að verndarsvæði þeirra verði afmörkuð með þeim hætti sem lög gera ráð fyrir.
Síðasta mars ógilti Hæstiréttur friðlýsingu á Jökulsá á Fjöllum, sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson hafði friðlýst árið 2019 þegar hann var umhverfis- og auðlindaráðherra.
Forsenda dómsins var sú að framkvæmd friðlýsingarinnar hefði verið ólögmæt þar sem Alþingi hafði ekki fjallað um afmörkun verndarsvæðisins líkt og lög gera ráð fyrir.
Niðurstaða hæstaréttar hafði þær afleiðingar að afturkalla þurfti á sömu forsendum friðlýsingu sjö annarra svæða, sem öll voru friðlýst í ráðherratíð Guðmundar Inga. Svæðin átta eru:
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur nú óskað eftir því að verkefnisstjórn rammaáætlunar taki öll þessi átta svæði til endurmats.
Þessir virkjunarkostir voru flokkaðir í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar með þingsályktun í febrúar 2013. Ný áætlun tók aftur á móti gildi í júní 2022 og er þessa virkjunarkosti ekki að finna í þeirri áætlun.
Ráðuneytið segir að kostirnir þurfi því að fara aftur í gegnum ferli verndar- og orkunýtingaráætlunar og að Alþingi þurfi að flokka þá á ný í verndarflokk áætlunarinnar með skýrt afmörkuðu verndarsvæði til að hægt sé að friðlýsa þá aftur í samræmi við niðurstöðu dómsins.
Þegar framangreindar tillögur verkefnisstjórnar liggja fyrir og hafa borist ráðuneytinu mun Alþingi fá þær til meðferðar á ný.