Kennarasamband Íslands sakar Umboðsmanns barna um að horfa ekki á heildarsamhengið í yfirlýsingu sem hann gaf frá sér vegna yfirvofandi verkfalls kennara.
Umboðsmaður sagði stöðu kjaraviðræðna þungbær og að hún valdi miklum vonbrigðum.
Hún hafi miklar áhyggjur og segir mikilvægt að hugað sé að stöðu fatlaðra barna og komið í veg fyrir að þau verði fyrir þjónusturofi.
Í yfirlýsingu segir KÍ að það sé eins og umboðsmaður átti sig ekki á að ef laun kennara verði ekki samkeppnishæf verði enn frekari atgervisflótti úr greininni.
„Hvers virði verða réttindi barna þá? Eða metur hún réttindi barna þannig að kennarar verði þvingaðir til vinnu gegn vilja sínum og án kjarasamnings?“ segir í yfirlýsingunni.
Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsingu KÍ í heild sinni:
Umboðsmaður barna hefur látið vinnudeilu KÍ til sín taka, nú síðast með yfirlýsingu á vefsíðu sinni, sem var birt samdægurs og fram fór málflutningur í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem málsóknarfélag krefst þess að verkföll, sem umboðsmaður tiltekur, verði dæmd ólögmæt. Hvort tímasetning birtingar yfirlýsingarinnar er tilviljun, skal ósagt látið.
Umboðsmanni barna er tíðrætt um rétt barns til menntunar. Um sé að ræða stjórnarskrárvarinn rétt þess til menntunar og fræðslu. Það virðist þó eins og hún horfi ekki á heildarsamhengið. Hún átti sig ekki á því að ef laun kennara eru ekki samkeppnishæf og standist ekki samanburð við aðra sérfræðinga – þá verði enn frekari atgervisflótti úr greininni. Hvers virði verða réttindi barna þá? Eða metur hún réttindi barna þannig að kennarar verði þvingaðir til vinnu gegn vilja sínum og án kjarasamnings?
Ástæða er til að staldra við þegar nánast enginn leikskóli uppfylli kröfur landslaga um mönnun kennara. Það er eins og umboðsmanni barna sé alveg sama um það, allavega er hún ítrekað búin að tjá sig opinberlega án þess að víkja að því orði. Hún hefur heldur ekki vikið orði að því að ríkinu og sveitarfélögum beri að efna samningsloforð við kennara frá árinu 2016, sem er megintilefni verkallsaðgerða.
Kennarasamband Íslands, 30. janúar 2025