Enn fleiri hvetja Guðrúnu áfram

Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjálfstæðisfélag Grindavíkur hvetur Guðrúnu Hafsteinsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, til þess að bjóða sig fram til formanns flokksins á næsta landsfundi.

Þetta segir í ályktun sem Sjálfstæðisfélag Grindavíkur hefur sent til fjölmiðla.

„Nú skiptir máli að sameina flokkinn og teljum við að reynsla Guðrúnar úr atvinnulífinu nýtist flokksstarfinu vel og hún geti styrkt stöðu flokksins á landsvísu,“ segir í ályktuninni.

Fær stuðning frá mörgum félögum

Sjálfstæðisfélagið bætist þar í hóp með fleiri félögum en sjálfstæðisfélögin í Árborg, félag sjálfstæðismanna í Ölfusi og Sjálfstæðisfélag Reykjanesbæjar hafa einnig skorað á Guðrúnu að bjóða sig fram til formanns.

Fleiri sjálfstæðisfélög í Suðurkjördæmi, heimakjördæmi Guðrúnar, hafa einnig hvatt hana til að bjóða sig fram, þar á meðal Sjálfstæðisfélag Hveragerðis og sjálfstæðisfélögin í Austur-Skaftafellsýslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert