Saksóknari krefst þess að Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir verði sakfelld fyrir manndráp frekar en líkamsárás í Bátavogsmálinu, sem var dómtekið í Landsrétti í dag. Auk þess telur saksóknari eðlilegt að framlengja refsingu hennar í sextán ár, frekar en tíu.
Í júlí 2024 dæmdi héraðsdómur hana fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til andláts sambýlismanns hennar.
Verjandi Dagbjartar krefst ógildingar dóms héraðsdóms og sýknu í málinu. Hann telur enn ekki sannað að fullu að Dagbjört hafi orðið brotaþola að bana, og bendir á að dómkvaddur matsmaður hefði ekki talið að aðrar dánarorsakir væru útilokaðar. Til vara krefst hann mildari refsingar yfir skjólstæðingi sínum.
Þrír réttarlæknar sem höfðu áður gefið skýrslu í málinu fyrir Héraðsdómi voru fengnir aftur til að veita viðbótarsvör fyrir Landsrétti í dag.
Dagbjört Guðrún hefur áfrýjað tíu ára fangelsisdómi til Landsréttar þar sem henni var gefið að sök að hafa dagana 22. og 23. september beitt sambýlismann sinn alvarlegri líkamsárás sem leiddi til andláts hans.
Dagbjört var ákærð fyrir brot á 211. gr. almennra hegningarlaga sem felur í sér manndráp af ásetningi, en þegar héraðsdómur sakfelldi hana heimfærði hann ákæruna undir 218. gr., sem felur í sér stórfellda líkamsárás og getur varðað allt að sextán ára fangelsisvist.
Héraðsdómur taldi það „ekki hafa vakað“ fyrir Dagbörtu að bana brotaþola en benti þó á að henni „gæti ekki dulist“ að áframhaldandi líkamsmeiðingar gætu banað sambýlismanni hennar.
Saksóknari er ósammála:
„Þessi lýsing felur í sér lýsingu á ásetningi,“ sagði Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari fyrir Landsrétti í dag. Hún lýsti atvikinu sem „langvinnri og hrottalegri árás“.
Dagbjört heyrist í símaupptökum saka sambýlismann sinn um að drepa hundinn sinn, hinn 14 ára Kókó, með því að kæfa hann, kyrkja og hálsbrjóta. Reyndar benda gögn málsins til þess að sambýlismaðurinn hafi ráðið Kókó af dögum.
Í símaupptökunum frá því um degi fyrir andlátið virðist hún ýja að því að ætla að svara í sömu mynt. Réttarkrufningar bentu til þess að hann hefði líklega drepist vegna köfnunar vegna ytri kraftverkunar á hálsinn og efri öndunarveginn, þ.e. kyrkingar.
„Þú ert búinn að kála hundinum mínum,“ heyrist í Dagbjörtu segja í einni símaupptöku á meðan Þúsund sinnum segðu já eftir Grafík spilast lágt í bakgrunni. Þar kveðst hún ætla sýna brotaþola „sömu væntumþykju“ og hann mun hafa sýnt Kókó.
Á fleiri upptökum heyrast högghljóð og kvein frá brotaþolanum. Brotaþolinn segir á annarri upptöku að Dabjört sé „búin að berja sig sundur og saman í andlitinu“.
Arnar Kormákur Friðriksson verjandi benti á að réttarmeinafræðingar sem fengnir voru í skýrslutöku hefðu ekki getað útilokað aðrar orsakir köfnunarinnar, t.d. blóðsykursfall, eða aðrar orsakir áverkanna, t.d. fall. Dagbjörtu var tíðrætt um að brotaþolinn hefði „alltaf verið að detta“ og krufningar benda til þess að einhverjir áverkar á brotaþola séu vegna falls.
„Héraðsdómur afhjúpar það að hann hafi ekki hugmynd um hvernig hún gaf honum þessa áverka,“ sagði Arnar einnig í málflutningi sínum.
Vísar hann þar til þess að í dómnum úr héraði hafi sérstaklega verið tekið fram að ekki sé hægt að fullyrða um hvernig Dagbjört kyrkti brotaþola.
Arnar Kormákur benti á að hún hefði sjálf hringt á Neyðarlínuna og veitt honum hjartahnoð og átt von á gesti þetta kvöld, sem sé til marks um að hún hafi ekki ætlað sér að bana sambýlismanninum.
Niðurstöðu úr Landsrétti er að vænta í febrúar.