Gul viðvörun víða um land vegna hríðarveðurs

Spáð er slæmu veðri víða um land í dag.
Spáð er slæmu veðri víða um land í dag. mbl.is/Kristinn

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og miðhálendið í dag vegna suðaustan hríðarveðurs.

Á Suðurlandi, Faxaflóa og miðhálendingu taka þær gildi klukkan 10, klukkan 11 á Breiðafirði og  12 á Vestfjörðum. 

Það verður vaxandi suðaustanátt og skýjað, 15-23 m/s með morgninum og snjókomu eða slyddu en það verður rigning við sjávarsíðuna. Vindur verður hægari um landið norðaustanvert.

Það hlýnar í veðri og hitinn verður 0-5 síðdegis. Það snýst svo í hægari vestanátt með stöku éljum vestan til í kvöld með kólnandi veðri.

Á morgun hefur verið gefin út gul viðvörun fyrir allt landið en þá gengur í suðaustan 18-25 m/s með rigningu seinni partinn en hægara og þurru veðri austan til fram á kvöld. Hitinn verður 5-10 stig annað kvöld.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert