Lögregluyfirvöld hafa lýst yfir hættustigi almannavarna vegna aukinnar hættu á öðru eldgosi á Sundhnúkagígaröðinni.
Magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem fór þaðan í síðasta eldgosi, samkvæmt mælingum Veðurstofu. Jarðskjálftavirkni þar hefur einnig aukist hægt frá goslokum en virknin er enn lítil.
Þróunin síðasta árið sýnir þó að jarðskjálftavirkni fyrir kvikuhlaup hefur dvínað með hverjum atburði. Því kann að vera að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta eldgos.
Slæmt veður gæti dregið úr næmni mælanetsins og þannig stytt viðbragðstíma vegna eldgoss.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum að hver og einn verði að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Það sama gildi um ferðamenn.
Fólki er ráðið frá því að vera á ferðinni í Grindavík að nauðsynjalausu.
Uppfært: