Fimm hafa sóst eftir því að verða næsti rektor Háskóla Íslands, en háskólaráð HÍ auglýsti í byrjun janúar embættið laust til umsóknar og er umsóknarfrestur til og með 31. janúar.
Jón Atli Benediktsson hefur gegnt embætti rektors Háskóla Íslands frá árinu 2015 en nýr rektor tekur við 1. júlí 2025.
Eftirfarandi hafa sótt um:
Rektor HÍ er forseti háskólaráðs, yfirmaður stjórnsýslu háskólans og æðsti fulltrúi hans og talsmaður gagnvart mönnum og stofnunum innan háskólans og utan hans. Hann stýrir starfsemi háskólans og hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki sér heildarstefnu í málefnum háskólans. Hann ber ábyrgð á framkvæmd stefnu háskólans og tengslum háskólans við innlenda og erlenda samstarfsaðila.
Rektor ber ábyrgð á og hefur eftirlit með allri starfsemi háskólans, þ.m.t. ráðningar- og fjármálum einstakra fræðasviða og stofnana. Hann er einnig ábyrgur fyrir gerð starfs- og rekstraráætlana og að þær séu samþykktar af háskólaráði.
Fram kemur í auglýsingu fyrir embættið að embættisgengir séu þeir einir sem hafa prófessorshæfi, leiðtogahæfileika og skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir háskólann, ríka samskiptahæfni og víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun. Háskólaráð ákvarðar hvaða umsækjendur uppfylla skilyrði um embættisgengi.
Kosning fer fram innan Háskóla Íslands á milli þeirra sem bjóða sig fram til embættis rektors. Það kemur svo í hlut menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að skipa háskólarektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs að loknum kosningunum.