Kjaradeilum Eflingar og Sorpu annars vegar og Hlífar og Sorpu hins vegar hefur verið vísað til ríkissáttasemjara.
Samningar hafa verið lausir frá því 31. mars 2024.
Ekki hefur þó enn verið boðað til samningafunda, að sögn Ástráðs Haraldssonar ríkissáttasemjara.