Greiningardeild Landsbankans spáir 0,5 prósentustiga lækkun stýrivaxta í næstu stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands. Tilkynnt verður um ákvörðunina 5. febrúar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá greiningardeildinni.
Verðbólga mældist 4,6% í janúarmánuði og hjaðnaði í takt við spá bankans og hefur þokast niður um 0,5 prósentustig frá síðustu vaxtaákvörðun.
Hægt hefur á íbúðaverðshækkunum og verðbólguvæntingar virðast stöðugri en áður. Laun hafa hækkað mun minna en áður og vinnumarkaður hefur leitað í eðlilegra horf, segir jafnframt í tilkynningunni.
Greiningardeildin telur að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands taki varfærin næstu skref, enda segi í síðustu yfirlýsingu hennar að áfram þurfi að „viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma“.