Lífshættulegur klakabunki grandaði bjórskilti

Aðkoman rétt eftir að snjóhengjan féll til jarðar.
Aðkoman rétt eftir að snjóhengjan féll til jarðar. Ljósmynd/Þorsteinn Daði Gunnarsson

„Það þurfti að taka lífshættulega klakabunka ofan af þakinu og þegar verið var að gera það rústaðist bjórskilti hjá mér,“ segir Sveinn Kjartansson, rekstrarstjóri Enska barsins við Austurstræti.

Í aðgerðinni féll klakabunkinn ofan á veggskilti sem auglýsir írska bjórframleiðandann Guinness.

Við barinn nú síðdegis. Sveinn segir skiltið ónýtt, hann hafi …
Við barinn nú síðdegis. Sveinn segir skiltið ónýtt, hann hafi þegar pantað nýtt og það muni berast eftir helgi. mbl.is/Eyþór

Ábyrgð húseigenda

Sveinn segir í samtali við mbl.is að svæðinu hafi verið lokað af til öryggis en eigendur hússins hafi fengið gluggaþvottafyrirtækið Glersýn í það verkefni að fella klakabunkann af þakskegginu.

„Þeir eru mjög mikið í þessu á veturna í miðbænum. Yfirleitt ber þetta skjótt að, þegar búið er að hlána aðeins eins og upp á síðkastið er þetta svo fljótt að koma. Þá er það húseigenda að undirbúa, girða af og panta þjónustuna eins fljótt og hægt er til að fjarlægja þetta,“ segir Sveinn.

Aðspurður segir hann skiltið ónýtt, hann hafi þegar pantað nýtt og það muni berast eftir helgi.

Ísinn féll af þakinu og niður á gangstéttina.
Ísinn féll af þakinu og niður á gangstéttina. Ljósmynd/Þorsteinn Daði Gunnarsson

Slys á hverju ári

Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS, segir slys og tjón af völdum snjóhengja, grýlukerta og klakabunka af húsþökum sem betur fer ekki algeng en þó verði þau á hverju ári.

Víða erlendis setja húseigendur upp stóra veggfána sem vegfarendum ber þá að varast að ganga undir. Á Íslandi segir Sigrún að svæði hafi aðallega verið afmörkuð með borða og keilum.

Aðspurð segir hún þá aðferð líklega notaða hér þar sem hún sé ódýrari og geri í raun sama gagn.

Aðalatriðið segir hún að börn séu ekki að leik nærri húsum og að húseigendur afmarki hættuleg svæði með einhverjum hætti.

Þá minnir Sigrún bílaeigendur að leggja bílum sínum ekki of nærri húsum ef snjóhengjur eru þar því þegar þær komi niður geti þær tjónað bílana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert