Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir vestanvert landið í dag. Óvissustig er á nokkrum leiðum fram á kvöld, svo sem á Hellisheiði og Þrengslum, Mosfellsheiði og víðar, og gæti vegum verið lokað með stuttum fyrirvara.
Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, en veðurspáin gerir ráð fyrir vaxandi suðaustanátt með vindhraða upp á 15-23 m/s með morgninum. Það verður snjókoma eða slydda, en rigning við sjávarsíðuna.
Snjóþekja og skafrenningur er á Reykjanesbraut og víða á Reykjanesi. Þæfingsfærð er á Hellisheiði, Grindavíkurvegi og Krýsuvíkurvegi.
Ófært er á Fróðárheiði og í Álftafirði og þæfingur frá Grundafirði að Vatnaleið. Hálka eða hálkublettir og skafrenningur er á flestum öðrum leiðum á Vesturlandi.
Flestir fjallvegir á Vestfjörðum eru óvissustigi. Hálka er á flestum leiðum sem búið er að kanna. Eitthvað er um snjóþekju og skafrenning á sunnanverðum Vestfjörðum.