Snjóþekja, mikill skafrenningur og hvassviðri eru á Reykjanesbrautinni og brýnir Vegagerðin fyrir vegfarendum á mjög smáum bílum að vera sem minnst á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir.
Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is, en þar segir að þæfingsfærð sé á Hellisheiði og á Grindavíkurvegi, sem er lokaður til norðurs, og ófært er á Krýsuvíkurvegi.
Þá kemur fram að vegirnir um Mosfellsheiði, Þrengsli og Hellisheiði verði á óvissustigi frá klukkan 8 til 18 í kvöld.