Næsti fundur boðaður á þriðjudag

Ágætur gangur er í kjaraviðræðum LSS og sveitarfélaganna.
Ágætur gangur er í kjaraviðræðum LSS og sveitarfélaganna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Næsti samningafundur í kjara­deilu Lands­sam­bands slökkviliðs- og sjúkra­flutn­inga­manna (LSS), og sveit­ar­fé­laga hefur verið boðaður hjá rík­is­sátta­semj­ara á þriðjudag.

Síðasti fundur fór fram síðatliðinn þriðjudag og var þá ágætur gangur í viðræðunum að sögn Ástráðs Haraldssonar ríkissáttasemjara.

Þá var einnig fundað í kjaradeilu LSS og ríkisins, en ekki hefur verið boðað til nýs fundar í þeim viðræðum. 

Ef samn­ing­ar nást ekki fyr­ir 10. fe­brú­ar næst­kom­andi skella á verk­föll slökkviliðs- og sjúkra­flutn­inga­manna sem starfa hjá sveit­ar­fé­lög­un­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert