Staðan þungbær og veldur vonbrigðum

„Þá verður ekki litið fram hjá því að þó að …
„Þá verður ekki litið fram hjá því að þó að verkfallsrétturinn sé óumdeildur eru börn skólaskyld og þau eiga stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar og fræðslu,“ segir umboðsmaður. mbl.is/Karítas

Umboðsmaður barna hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna yfirvofandi verkfalls kennara. Þar kemur fram að staða kjaraviðræðna aðildarfélaga Kennarasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga annars vegar og ríkið hins vegar valdi miklum vonbrigðum.

Þá hefur umboðsmaður miklar áhyggjur af börnum sem eru í viðkvæmri stöðu.

Fram kemur að það sé sérstaklega þungbært að verkfallsaðgerðir komi aftur til með að bitna á börnum í þeim fjórum leikskólum sem voru í verkfalli frá 29. október til 29. nóvember.

Hann segir að það sé mikilvægt að hugað verði sérstaklega að stöðu fatlaðra barna og að komið verði í veg fyrir að þessi viðkvæmi hópur barna verði fyrir þjónusturofi.

Verða að tryggja stöðugleika í skólakerfinu

Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsinguna í heild sinni:

„Staða kjaraviðræðna aðildarfélaga Kennarasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga annars vegar og ríkið hins vegar veldur miklum vonbrigðum. Að óbreyttu munu verkföll kennara hefjast að nýju 1. febrúar. Boðuð hafa verið ótímabundin verkföll í 14 leikskólum og tímabundin verkföll í 7 grunnskólum. Þá má einnig reikna með að verkföll verði í framhaldsskólum og tónlistarskólum, en upplýsingar um fyrirkomulag þeirra verkfalla liggja ekki fyrir.

Það er sérstaklega þungbært að verkfallsaðgerðir komi aftur til með að bitna á börnum í þeim fjórum leikskólum sem voru í verkfalli frá 29. október til 29. nóvember. Þá hefur umboðsmaður barna miklar áhyggjur af börnum sem eru í viðkvæmri stöðu, m.a. fötluðum börnum og börnum sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Fyrir sum börn eru leikskólar og grunnskólar griðastaðir sem veita öryggi sem þau njóta ekki annars staðar. Þá verður ekki litið fram hjá því að þó að verkfallsrétturinn sé óumdeildur eru börn skólaskyld og þau eiga stjórnarskrárvarinn rétt til menntunar og fræðslu.

Það er mikilvægt að hugað verði sérstaklega að stöðu fatlaðra barna og að komið verði í veg fyrir að þessi viðkvæmi hópur barna verði fyrir þjónusturofi. Umboðsmaður barna tekur undir ályktun Umhyggju, Þroskahjálpar, Einhverfusamtakanna, Sjónarhóls og ÖBÍ frá 28. janúar varðandi stöðu fatlaðra barna í fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum.

Það er grundvallarhagsmunamál fyrir öll börn að deiluaðilar leiti allra leiða við að ná sáttum og að samningar náist sem tryggja stöðugleika í skólakerfinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert