Þorsteinn Skúli býður sig fram til formanns VR

Þorsteinn Skúli Sveinsson.
Þorsteinn Skúli Sveinsson. Ljósmynd/Aðsend

Þorsteinn Skúli Sveinsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns VR.

Þorsteinn Skúli er 38 ára Hafnfirðingur og býr með eiginkonu sinni og þremur börnum í Hafnarfirði. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 en árið 2019 sótti hann sér viðbótarnám í mannauðsstjórnun frá sama skóla. Þorsteinn starfaði hjá VR á árunum 2007 til 2021 og lengst af sem sérfræðingur á kjaramálasviði. Eftir 14 ár hjá VR réð hann sig til starfa sem lögfræðingur hjá Sameyki stéttarfélagi. Þaðan lá leið hans til Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Núna starfar Þorsteinn Skúli á mannauðs- og stefnusviði BYKO, að því er segir í tilkynningu frá Þorsteini Skúla. 

Vill endurvekja rödd félagsfólks

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í embætti formanns VR í formanns- og stjórnarkosningum sem fram fara innan félagsins í mars næstkomandi. Ég vil endurvekja rödd félagsfólks og vinna markvisst að bættum kjörum og jöfnuði. Sjálfur er ég vel kunnugur starfsemi VR þar sem ég átti fjórtán farsæl starfsár hjá félaginu og starfaði þar af lengst sem sérfræðingur á kjaramálasviði. Ásamt því hef ég starfað sem lögfræðingur hjá Sameyki, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og í dag á mannauðs- og stefnusviði BYKO. Þessi reynsla hefur gefið mér góða innsýn í að sitja beggja vegna borðsins og dýrmætan skilning á þörfum félagsfólks,“ segir Þorsteinn Skúli í tilkynningunni. 

Formaður VR sé óháður pólitík

„Sem formaður VR mun ég leggja áherslu á jöfnuð og bætt kjör fyrir öll. Ég vil skapa VR sem sameinar ólíkar raddir og tryggja það að félagsfólk á öllum aldri finni fyrir því að starfað sé í þeirra þágu. Ég mun fylgja eftir mikilvægum málum sem fyrrum formenn og öflugt starfsfólk félagsins hefur unnið að á síðustu árum. Má þar m.a. nefna uppbyggingu húsnæðis fyrir félagsfólk VR (Blævar), kjör hinna lægst launuðu, starfsmenntamál og mikilvægi þess að jafnrétti sé gætt í hvívetna hjá hinu almenna félagsfólki.

Ég tel það grundvallaratriði að formaður VR sé óháður pólitík og einbeiti sér alfarið að málefnum félagsfólks. Þannig tryggjum við opið og gagnsætt samtal við stjórnvöld, óháð því hvaða flokkar eru við völd og megum við aldrei láta pólitískar skoðanir skyggja á hagsmuni félagsfólks. Það er mér hjartans mál að skapa sanngjarna og sterka framtíð fyrir félagsfólk og mun ég leggja mig allan fram í þetta mikilvæga hlutverk,“ segir hann jafnframt í tilkynningunni. 

Nánari upplýsingar um framboðið er að finna hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert