Þriggja bíla árekstur á Vesturlandsvegi

Ljósmynd/Daníel Tryggvi

Þrjú umferðaróhöpp urðu á Vesturlandsvegi á skömmum tíma nú rétt eftir hádegi. Þar á meðal þriggja bíla árekstur fyrir neðan Grafarholtið.

Að sögn sjónarvotts rann lítill fólksbíll til í hjólförum og keyrði inn í hliðina á öðrum bíl. Sá snérist á veginum og fékk þá jeppa framan á sig. Draga þurfti tvo af bílunum af vettvangi.

Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir áreksturinn í samtali við mbl.is en hefur ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu, aðrar en að lögreglan er á vettvangi.

Ljósmynd/Daníel Tryggvi

Að sögn sjónarvotts virtust þó ekki hafa orðið slys á fólki.

Þá fór bíll út af veginum við Korpúlfsstaðaveg.

Þriðja óhappið var þess eðlis að ökumaður missti bíl sinn út af veginum í vindhviðu á Kjalarnesi, rétt við Hvalfjarðargöngin.

Árni segir viðbúið að einhverjar umferðartafir verði vegna óhappanna og slæmrar færðar.

„Það er skítaveður, það er bara svoleiðis.“

Þá segir hann mega gera ráð fyrir þungri umferð síðdegis, upp úr þrjú, hálffjögur vegna aðstæðna í gatnakerfinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert