Tólf mánaða verðbólga mælist nú 4,6% og lækkar um 0,2 prósentustig frá fyrri mánuði.
Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í janúar 2025, er 635,5 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,27% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 510,2 stig og lækkar um 0,29% frá desember 2024, að því er segir á vef Hagstofu Íslands.
Þá segir að verð á áfengi og tóbaki hafi hækkað um 3,9% (áhrif á vísitöluna 0,10%) og kostnaður vegna rafmagns og hita hafi hækkað um 3,5% (0,11%). Einnig hækkaði verð á bensíni og olíum um 3,6% (0,13%).
Bent er á að vetrarútsölur séu víða í gangi og lækkuðu föt og skór um 6,9% (-0,26%), húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. um 4,6% (-0,23%) og raftæki um 9,5% (-0,11%). Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 16,1% (-0,36%).
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,0%.
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í janúar 2025, sem er 635,5 stig, gildir til verðtryggingar í mars 2025 að sögn Hagstofu Íslands.
Í næstu viku, n.t.t. 5. febrúar, mun peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynna fyrstu vaxtaákvörðun ársins.