Vitundarvakning í dag: „Lífið er núna“

Fjáröflunin snýr að sölu á veglegum húfum sem sækja innblástur …
Fjáröflunin snýr að sölu á veglegum húfum sem sækja innblástur í hönnun listakonunnar Tótu Van Helzing. Ljósmynd/Kraftur

Kraftur, hagsmuna- og stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, heldur í dag „Lífið er núna daginn“ í tilefni af vitundarvakningu Krafts.

„Lífið er núna dagurinn“ er nú haldinn í þriðja sinn en vitundarvakning Krafts er árleg og ein stærsta fjáröflun félagsins. Stendur hún frá 22. janúar til 12. febrúar.

Fjáröflunin snýr að sölu á veglegum húfum sem sækja innblástur í hönnun listakonunnar Tótu Van Helzing. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Byrja lífstílsbreytinguna eða hringja í gamlan vin

„Kraftur hvetur almenning og fyrirtæki í landinu til að halda daginn hátíðlegan en tilgangur hans er að minna fólk á að staldra við og njóta líðandi stundar,“ er haft eftir Þórunni Hildu Jónasdóttur, viðburða- og þjónustustjóra Krafts.

Félagið hvetur vinnustaði til að brjóta upp hversdagsleikann með því t.d. að bjóða upp á appelsínugular veitingar og lýsa byggingar upp með appelsínugulri lýsingu ef hægt er en appelsínugulur er litur Krafts.

Fólk geti annað hvort klæðst appelsínugulu eða mætt í sínu fínasta pússi í vinnuna. Tilvalið sé að draga fram sparistellið, byrja lífsstílsbreytinguna, hringja í gamlan vin eða bara baka uppáhaldskökuna þó svo það sé ekki veisla framundan.

Ég á lítinn skrítinn skugga

Í tilefni af „Lífið er núna deginum“ býður Kraftur upp á létta pop-up tónleika með söngkonunni Rakel Sigurðardóttur í verslun Rammagerðarinnar á Laugavegi 31 kl. 17.30-18.

Rakel söng lagið Ég á lítinn skrítinn skugga eftir Gunnar Þórðarson við texta Sigurðar Júlíusar Jóhannessonar í nýrri útgáfu sem heyrist í auglýsingu Krafts, hluta af vitundarvakningu félagsins í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert