Engir jarðskjálftar hafa mælst yfir kvikuganginum á Sundhnúkagígaröðinni á Reykjanesskaga síðan fjórir litlir skjálftar mældust þar á miðvikudag.
Þetta segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Hættustigi var lýst yfir vegna hættu á eldgosi á Reykjanesskaga í gær, einkum sem forvörn fyrir helgina en búast má við að skyggni verði takmarkað og færð geti spillst í vonskuveðri sem væntanlegt er.
Lögreglan á Suðurnesjum ráðleggur fólki frá því að vera á ferðinni í Grindavík að nauðsynjalausu.
Gul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Faxaflóa klukkan 12 á hádegi í dag. Slæm veðurskilyrði hafa áhrif á mælakerfi Veðurstofunnar og þegar hvasst er og mikil ofankoma verður mæling ekki jafn næm og við betri skilyrði.
Magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgast það magn sem fór þaðan í síðasta eldgosi, samkvæmt mælingum Veðurstofu. Jarðskjálftavirkni þar hefur einnig aukist hægt frá goslokum en virknin er enn lítil.
Þróunin síðasta árið sýnir þó að jarðskjálftavirkni fyrir kvikuhlaup hefur dvínað með hverjum atburði. Því kann að vera að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta eldgos. Sjö eldgos hafa orðið á svæðinu síðan 18. desember 2023 en því seinasta lauk í desember á síðasta ári.