Ekki er unnt að bjóða út nýjar framkvæmdir í samgöngum aðrar en þær sem heimilaðar voru í síðustu fimm ára samgönguáætlun, en hún rann sitt skeið um síðustu áramót. Þar með talin er áformuð brú yfir Fossvog, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær.
Nýframkvæmdir verða að bíða nýrrar samgönguáætlunar, en skv. því sem haft hefur verið eftir samgönguráðherra stendur ekki til að hún verði lögð fram á Alþingi fyrr en í haust. Það er gagnrýnisvert að mati Vilhjálms Árnasonar, alþingismanns og fyrrverandi varaformanns umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.
„Það er ástæða fyrir því lögbundna ferli sem er gert ráð fyrir í samgönguáætlun,“ segir hann.
„Við meðferð næstu samgönguáætlunar þarf einnig að gera ráð fyrir áfangaskiptingu framkvæmda samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og forgangsröðun verkefna, sem tekur á þeim bráðavanda sem er í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu. Það er alvarlegt að það hafi ekki verið gert í uppfærðum samgöngusáttmála. Sú vinna tók þó 60 vikur í stað sex vikna, eins og áformað var,“ segir Vilhjálmur.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag