Hellisheiðin lokuð

Lokað er fyrir umferð um Hellisheiði. Myndin er úr safni.
Lokað er fyrir umferð um Hellisheiði. Myndin er úr safni. mbl.is/Óttar Geirsson

Mikið hvassviðri er nú á Hellisheiði og lokað hefur verið fyrir umferð í báðar áttir. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Þrengslavegur er opinn.

Hvöss suðaustanátt geng­ur nú yfir landið og fyrr í dag var varað við að búast mætti við snörp­um vind­hviðum við fjöll á vest­ur­helm­ingi lands­ins.

„Gular og appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi um allt land. Við hvetjum alla þá sem hyggja á langferðir næstu daga að fylgjast vel með færð á vegum og veðurspám þar sem það verður lægðagangur og erfið akstursskilyrði næstu daga,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert