Endurvinnslustöð Sorpu við Breiðhellu í Hafnarfirði hefur verið lokað vegna veðurs. Bálhvasst er þar og töldu stjórnendur ekki á það hættandi að hafa lengur opið í dag.
„Við viljum hvorki stefna starfsfólki né gestum í hættu. Vindurinn er orðinn það mikill að við metum það þannig að ekki sé boðlegt að hafa lengur opið,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Sorpu.
Gunnar Dofri kveðst telja að stöðin verði opin á hefðbundnum tíma á morgun.