Lýsa yfir óvissustigi vegna ofanflóðahættu

Íbúar á Austfjörðum eru hvattir til að sýna aðgæslu nærri …
Íbúar á Austfjörðum eru hvattir til að sýna aðgæslu nærri vatnsfarvegum þar sem krapaspýjur geta borist niður. Myndin er frá Fáskrúðsfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óvissustigi hefur verið lýst yfir á sunnanverðum Austfjörðum vegna ofanflóðahættu en hætta er á krapaflóðum og votum snjóflóðum á svæðinu. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. 

Viðbúnaður hefur verið aukinn á tilteknum svæðum á Fáskrúðsfirði og á Stöðvarfirði. 

Íbúar í Ljósalandi ofan Vattarnesvegar á Fáskrúðsfirði og íbúar Borgargerði 2 og Fjarðarbraut 56 á Stöðvarfirði eru beðnir um að dvelja ekki í herbergjum með glugga sem snúa upp í hlíðar á jarðhæð eða í kjöllurum. 

Í tilkynningunni segir að lögregla muni heimsækja íbúa í ofangreindum húsum og vekja athygli þeirra á varúð sem rétt er að sýna á meðan óvissustig varir. 

Íbúar á Austfjörðum eru hvattir til að sýna aðgæslu nærri vatnsfarvegum þar sem krapaspýjur geta borist niður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert