Magnea Marín Halldórsdóttir
Aldrei hafa fleiri umsagnir borist um eitt mál í samráðsgátt stjórnvalda en gerðu fyrir verkefnið Verum hagsýn í rekstri ríkisins.
Metfjöldi landsmanna tók þátt í verkefninu og bárust alls 3.985 umsagnir í samráðsgátt, er samsvarar um 0,7% þjóðarinnar. Þá bárust um 800 umsagnir á dag á fyrsta og öðrum degi, sem einnig er met.
Umsagnirnar bárust flestar frá einstaklingum en um 62 umsagnir bárust frá félagasamtökum og fyrirtækjum.
Tæplega 68% umsagna er bárust frá einstaklingum komu frá körlum, eða um 2.661, og rúmlega 32% frá konum, 1.262.
Langflestar umsagnir bárust frá einstaklingum eða um 3.923 en um 62 umsagnir bárust frá lögaðilum, s.s. félagasamtökum og fyrirtækjum.
Þátttakendur sendu margir inn fleiri en eina umsögn, auk þess var algengt að setja fram fleiri en eina tillögu í einni umsögn.
Um 10.000 tillögur um hagræðingu, einföldun stjórnsýslu og sameiningu stofnana er að finna í umsögnunum, en þó eru margar þeirra af svipuðum toga.