Mikill vatnselgur hefur myndast á götum höfuðborgarsvæðisins. Dæmi eru um að bílar drepi á sér þegar keyrt er í gegnum vatnið og er mælt með því að fólk reyni að bíða veðrið af sér ef það getur frekar en að vera á ferðinni í kvöld.
Árni Friðleifsson aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir daginn hingað til hafa verið ágætan, lítið hafi verið um óhöpp á götunum en segir hann að staðan sé nú að versna.
„Það er að blotna mikið og skilyrði til aksturs eru orðin erfið.“
Hann segir ástandið á götunum ekki koma á óvart.
„Það var búið að spá þessari rigningu og svona smá hlýindum ofan í allan þennan snjó sem er fyrir og þá náttúrulega myndast bara vatnselgur.“
Kveðst hann vita til þess að starfsmenn Reykjavíkurborgar og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu séu nú á fullu við að opna niðurföll til að koma vatninu niður. Hins vegar sé mikill klaki undir sem geri þeim erfiðara fyrir.
Mikill vatnselgur verður á götum í kvöld og segir aðalvarðstjórinn að búast megi jafnvel við því að bílar geti blotnað það mikið að það drepist á þeim.
„Í gegnum tíðina höfum við upplifað það. En ef fólk keyrir varlega þá á nú allt að ganga upp,“ segir Árni og bætir við:
„Þetta eru aðstæður sem við brýnum fyrir fólki að ef það þarf ekki að vera á ferðinni þá er gott að reyna að bíða þetta af sér.“